Grunnskólar Kópavogs

Innritun 6 ára barna (fædd 2016) fer nú alfarið fram í gegnum þjónustugátt á vef bæjarins https://thjonustugatt.kopavogur.is
Opnað verður fyrir innritun fyrir næsta skólaár mánudaginn 7. mars og stendur hún til 15. mars 2022.
Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum. Skráning í mötuneyti, sumarfrístund og frístund fyrir næsta skólaár verður auglýst síðar og munu foreldrar frá póst frá skólanum þegar þar að kemur. Haustið 2022 munu skólar hefjast með skólasetningardegi þriðjudaginn 23. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í einkaskólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1. apríl og skal sækja um á þjónustugátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.
Menntasvið Kópavogsbæjar