Jólafréttabréf Grænatúns 2019


Kæru foreldrar


Senn koma jólin og er undirbúningur þeirra hafinn hér í Grænatúni. 

Við höldum að sjálfsögðu í okkar venjur og siði sem hafa skapast hér í gegnum árin. 

Föstudaginn 29. nóvember verður  Rauður dagur en þá munum við mæta í rauðum fatnaði í skólann og borða rauðan mat. Í söngstundinni okkar munum við kveikja á fyrsta kertinu okkar á aðventukransinum sem heitir Spádómskertið.

Helgileikur fyrir foreldra.

Fimmtudaginn 5. desember kl:9:30 verður Skessudeild í aðalhlutverki og þá eru foreldrar á Skessudeild velkomnir. 

Föstudaginn 6. desember kl:9:30 verða börnin á Trölladeild í aðalhlutverkum og börnin á Dvergadeild verða í kórhlutverki og þá eru foreldar barna á þeim deildum velkomnir. 

Eftir helgileikina er foreldrum boðið með börnum sínum inn á deildar í smá hressingu. Vonandi geta sem flestir foreldrar séð af tíma til að setjast niður og spjalla svolítið.

Sunnudaginn 8. desember kl: 11-13 ætlar foreldrafélagið að vera með hið árlega jólaball í Snælandsskóla. Foreldrafélagið verður með heitt kakó á boðstólnum og svo koma allir foreldrar með eitthvað gott á sameiginlegt hlaðborð. 

Þriðjudaginn 10. desember fara elstu börnin á Árbæjarsafn og skoða hvernig haldið var upp á jólin í gamla daga.

Föstudaginn 13. desember kl:10:35 kemur leikhópurinn Vinir með sýninguna Strákurinn sem týndi jólunum

Miðvikudaginn 18. desember verður hátíðardagur hjá okkur þar sem hátíðarmorgunmatur og hátíðarhádegismatur verða bornir fram, hátíðarsöngstund, jólabíó og dansað í kringum jólatréið. Það verður sannkölluð hátíðarstemning í húsinu.

 

Að lokum dönsum við jólin út mánudaginn 6. janúar 2020.

 

Við munum að sjálfsögðu syngja mikið og lesa jólasögur og kvæði, auk þess sem við föndrum. Allt verður þetta þó í hófi og við leggjum upp með rólegheit og sleppum öllu stressi. 

Við viljum benda á að Stekkjastaur kemur til byggða fyrstur bræðra og fer skórinn út í glugga að kvöldi 11. desember og ekki fyrr. Við vonum að jólasveinar stilli skógjöfum í hóf 


Við óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir árið sem er að líða og óskum ykkur velfarnaðar á nýju ári 2020


Jóla- og nýárskveðjur starfsfólk Grænatúns