Vorhátíð Grænatúns

Í ár verður vorhátíð og afmæli leikskólans þann 11. maí með óhefðbundnu sniði þar sem hátíðin fer fram eingöngu með nemendum og starfsmönnum að þessu sinni. Við munum gera okkur glaðan dag með skemmtiatriðum á milli deilda, myndlistarsýningum og gæða okkur á afmælisköku í tilefni 37 ára afmæli skólans. Við munum senda myndbönd í gegnum deildarsíður skólans af deginum. Vonandi fer þessum Covid tímum að ljúka en við höldum þessum takmörkunum á vonandi síðustu metrunum þangað til við eignumst eðlilegt líf aftur.