Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan barna

Fræðslu- og rannsóknastofa um þroska læsi og líðan barna og ungmenna hefur útbúið myndbönd fyrir foreldra barna á Íslandi. Verkefnið var styrkt af samfélagssjóði Háskóla Íslands. Markmiðið er að kynna niðurstöður íslenskra og erlendra hágæðarannsókna á einfaldan og hagnýtan hátt.
 
Þetta eru tvö myndbönd, annars vegar Málörvun leikskólabarna og hins vegar Fjöltyngd börn í íslenskum leik- og grunnskólum. Síðarnefnda myndbandið er með textum á ýmsum tungumálum. Myndböndin fjalla um það hvernig foreldrar geta stutt við málþroska barna sinna og þar með gengi þeirra í námi.
 
Myndböndin eru aðgengileg á heimasíðu Rannsóknastofunnar