Jólafréttabréf Grænatúns 2021

Senn koma jólin og er undirbúningur þeirra að hefjast hér í Grænatúni. 
Við höldum að sjálfsögðu í okkar venjur og siði sem hafa skapast hér í gegnum árin en þó með breyttu sniði í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.  
 
Föstudaginn 26. nóvember  verður Rauður dagur en þá munum við mæta í rauðum fatnaði í skólann og borða rauðan mat
 
Helgileikurinn okkar árlegi verður með breyttu sniði í ár þar sem foreldrar geta ekki verið með okkur og munum við senda út upptöku af helgileiknum inni á síðum Trölladeildar og Skessudeildar og Dvergadeild mun senda upptöku af jólasöng. Við munum auglýsa tímasetningu þegar að nær dregur.
 
Elstu börnin okkar fóru á Árbæjarsafn í vikunni að skoða hvernig jólin voru í gamla daga.
 
Mánudaginn 13. desember kemur jólasýning "Strákurinn sem týndi jólunum" í boði foreldrafélags Grænatúns.
 
Miðvikudaginn 15. desember kl:9:30 koma jólasveinar í heimsókn í garðinn okkar og við höldum úti-jólaskemmtun í stað okkar árlega jólaballs í Snælandsskóla á vegum okkar frábæra foreldrafélags.
 
Föstudaginn 17. desember verður hátíðardagur hjá okkur þar sem hátíðarmorgunmatur og hátíðarhádegismatur verða bornir fram og hátíðarsöngstund, jólabíó og dansað í kringum jólatréð í salnum okkar. Það verður sannkölluð hátíðarstemning í húsinu.
 
Að lokum dönsum við jólin út fimmtudaginn 6. janúar 2020.
Við munum að sjálfsögðu syngja mikið og lesa jólasögur og kvæði, auk þess sem við föndrum. Allt verður þetta þó í hófi og við leggjum upp með rólegheit og sleppum öllu stressi. 
 
Við viljum benda á að Stekkjastaur kemur til byggða fyrstur bræðra og fer skórinn út í glugga að kvöldi 11. desember og ekki fyrr. Við vonum að jólasveinar stilli skógjöfum í hóf 
 
Þar sem ekki hefur gefist tækifæri á foreldrafundinum sem áætlaður var sökum aðstæðna í þjóðfélaginu þá minnum við ykkur á að það er ávallt velkomið að hafa samband og biðja um samtal við kennara í því árferði sem við búum við núna.  
 
Við vonumst til að geta haldið þessari dagskrá en að sjálfsögðu verður hún skoðuð ávallt með tilliti til sóttvarna. 
 
Við óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir árið sem er að líða og óskum ykkur velfarnaðar á nýju ári 2022
 
Jóla- og nýárskveðjur
Starfsfólk Grænatúns