Fyrirhugað verkfall

Næsta vika 15. - 19.maí verður óvenjuleg í leikskólanum vegna verkfalls starfsmannafélags Kópavogs. 

Verkfall starfsmannafélags Kópavogsbæjar hefst, ef ekki næst að semja, á mánudaginn 15.maí og mun standa allan daginn og verður þvi leikskólastarf mjög skert hvað varðar mætingu barna og starfsemi. Þriðjudaginn 16. maí er verkfall áætlað fyrir hádegi til kl.12 og gildir sama skerðing því hálfan daginn þar.

Búið er að senda út allar upplýsingar til foreldra varðandi það hvernig börnin geta mætt og eru foreldrar beðnir að skoða það vel en börnin munu einungis geta mætt á þeim tíma sem foreldrar hafa fengið til sín í tölvupósti