Appelsínugul veðurviðvörun - fimmtudaginn 26 mars

Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar frá 7:00-13:00

Leik- og grunnskólar eru opnir einungis fyrir börn framlínustarfsfólks en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.
Við biðjum ykkur að fylgjast vel með skilaboðum í fyrramálið ef breytingar verða á aðstæðum.

Við biðjum þá framlínustarfsmenn sem þurfa á því að halda að senda barnið sitt í leikskólann að láta okkur vita sem allra fyrst, þannig að hægt sé að gera ráðstafanir með hvað við þurfum mikið af starfsfólki á svæðið.


An Orange Weather Warning will be in effect tomorrow from 07:00 AM to 01:00 PM.
Preschool and elementary school will only be open for frontline workers while the warning is in effect and school activities will be disrupted at that time. Normal preschool, elementary school, and after-school activities will resume after the alert ends.
We kindly ask you to closely monitor messages tomorrow morning in case there are any changes to the situation.

We ask frontline workers who need to send their child to preschool to let us know as soon as possible, so that arrangements can be made for how many staff we need in the school.