Vorhátíð Grænatúns

Vorhátið Grænatúns verður haldin mánudaginn 11 maí kl 14:30 en á sama tíma verður einnig fagnað 42 ára afmæli leikskólans en hann tók til starfa 11. maí árið 1984.
Hátíðin byrjar úti á skemmtiatriðum frá hverri deild en svo fara allir inn á sína deild þar sem sýning er á verkum barnanna og veitingar.

Foreldrafélagið óskar eftir því að foreldrar komi með veitingar á sameiginlegt hlaðborð sem haldið er á hverri deild fyrir sig. Athugið að allar veitingar þurfa að vera eggja - og hnetulausar sökum bráðaofnæmis.