Skipulagsdagar 13 og 15 maí

Við minnum á að leikskólinn er lokaður vegna skipulagsdaga miðvikudaginn 13 maí og föstudaginn 15 mai. Auk þess er uppstigningardagur þann 14 maí og skólinn einnig lokaður þann dag.

Starfsfólk skólans er á leið í námsferð til Lloret de Mar á Spáni þar sem við munum meðal annars kynna okkur mismunandi leikskóla með fjölbreyttum áherslum. Við munum fræðast betur um hvernig vinna má með börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn sem er hópur sem fer fjölgandi í okkar leikskóla og því mikilvægt að fræðast um málefnið og mismunandi leiðir til að vinna með þessum börnum.