Útskrift elstu barna
Útskrift elstu barna Grænatúns fór fram í fjölnota sal skólans fimmtudaginn 28. mai síðastliðinn að viðstöddum foreldrum barnanna. Eftir ræðu frá Jónu leikskólastjóra sungu börnin tvö lög ásamt því sem stelpurnar sýndu dans sem þær höfðu verið að æfa. Að því loknu tók Skessudeildin við og börnin fengu útskriftarskjal, kveðjuhjarta ásamt rós. Í lokin gæddu allir viðstaddir sér á súkkulaðiköku og ávöxtum.