Jólaball foreldrafélagsins, sunnudaginn 8. desember

Nú er komið að hinu árlega jólaballi Grænatúns. Við munum njóta samverunnar, dansa í kringum jólatréð og hver veit nema óvæntir gestir banki upp á. Foreldrafélagið býður upp á kakó og kaffi en foreldrar eru beðnir um að koma með eitthvað á sameiginlegt hlaðborð. Systkini, ömmur og afar velkomin. Stjórnin óskar eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða við frágang að balli loknu. Margar hendur vinna létt verk!


HVENÆR: SUNNUDAGINN 8. DESEMBER

KLUKKAN: 11-13

HVAR: MATSAL SNÆLANDSSKÓLA


Stjórn foreldrafélagsins

Fréttamynd - Jólaball foreldrafélagsins, sunnudaginn 8. desember

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn