Lubbi finnur málbein
Lubbastundir byggjast á bókinni Lubbi finnur málbein, íslensku málhljóðin sýnd og sungin.
Lubbi er íslenskur fjárhundur. Hann er duglegur við að gelta og þá heyrist ,,voff-voff-voff“. Lubba langar mikið að læra að tala en þá vandast málið því þá þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Krakkarnir ætla að hjálpa Lubba að læra íslensku málhljóðin með söng og ýmsum öðrum æfingum.
Það sem hundum finnst best að naga er bein og er Lubbi engin undantekning. Þess vegna líta málhljóðin út eins og bein og nagar Lubbi beinin og lærir með því að tala smátt og smátt. En hann þarf góða aðstoð og ætla krakkarnir að aðstoða hann.
Í bókinni er hvert hljóðið táknað með litlum og stórum bókstaf. Hvert málhljóð er tekið fyrir á síðu eða opnu. Hverju málhljóði fylgir ákveðið lag og einnig stutt saga sem lögð er sérstök áhersla á hvert hljóð fyrir sig. Hvert málhljóð á sér ákveðið tákn, í þeim táknum er oft á tíðum stuðst við tákn með tali. Með því að tengja hljóðið við táknræna hreyfinguna er auðvelt að læra það og muna. Ætlum við að styðjast við táknin og hreyfingarnar til að auðvelda okkur að læra lögin betur. Vísurnar fjalla um hljóðin. Þær eru skemmtilegar og auðvelt að læra utan bókar. Það er gaman að syngja með og tákna hljóðin um leið.
Í bókinni Lubbi finnur málbein er unnið með nám í þrívídd, þá er átt við sjónskyn, heyrnaskyn og hreyfi- og snertiskyn. Með því að vinna með hljóðnám í þrívídd er verið að æfa börnin í að tileinka sér íslensku málhljóðinn, það brúar bilið milli stafs og hljóðs og að lokum kemur þetta börnum á sporið í lestri og ritun.
Einnig eru í bókinni stuttar sögur sem tengjast hverju hljóði. Í sögunni má finna hljóðið fremst í orði, inni í orði eða aftast í orði. Sögurnar geyma fjölbreyttan orðaforða og hvetja til auðugs málfars. Spurningar í sögulok gefa færi á áhugaverðum samræðum, rökræðum og vangaveltum.
Ekki er veriði að kenna börnunum stafina heldur hljóðin sem þeir segja og er það talið auðvelda börnunum að tengja hljóðin við stafina þegar að því kemur.
Heimasíðan : Lubbi finnur málbein