Numicon

Numicon kubbana  er hægt að nýta á mjög fjölbreyttan hátt þar sem börnin geta handleikið kubbana, rannsakað, kannað mismunandi mynstur, séð tengsl á milli talna út frá myndum. Numicon er einnig mjög skemmtilegt að nýta með öðrum efnivið. 

Meginhugmyndin er að börn skilji og átti sig á að tölustafir eru ekki bara tákn sem hafa verið sett niður á blað af  handahófi, heldur mynda þeir skipulagt kerfi þar sem alls konar mynstur koma fyrir.