Vinátta - forvarnarverkefni Barnaheilla
Vinátta er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti ætlað leikskólum, fyrstu bekkjum grunnskóla og dagforeldrum. Verkefnið felst í útgáfu námsefnis sem ætlað er börnum, foreldrum þeirra og starfsfólki.
Efnið er danskt að uppruna og heitir á frummálinu Fri for Mobberi. Það er þýtt, staðfært og gefið út í samstarfi við Red barnet – Save the Children og Mary Fonden í Danmörku.
Um er að ræða þrenns konar efni:
Mikilvægt er að hefja forvarnarstarf strax á leikskólastigi með því að vinna með góðan skólabrag, jákvæð samskipti, vinsemd og virðingu fyrir fjölbreytni í nemendahópnum. Við vitum að einelti á sér stað í skólum, sérstaklega meðal barna í 4.-7. bekk. Rót eineltis má þó oft rekja til leikskóla. Það er því mikilvægt að hafa afskipti snemma og hefja forvarnarstarf í leikskólum til að koma í veg fyrir einelti síðar. Vinátta er góð leið til þess.
Taska með fræðsluefni
Um er að ræða tösku sem inniheldur efni fyrir nemendur og kennsluleiðbeiningar fyrir starfsfólk, auk efnis til að nota með foreldrum og starfsfólki. Hvatt er til samtala og leikja með börnum sem byggja á gildum verkefnisins; umhyggju, virðingu, umburðarlyndi og hugrekki. Gert er ráð fyrir fjölbreyttum vinnubrögðum, svo sem hlustun, umræðu og tjáningu í leik, jafnt úti sem inni. Í töskunni er bangsinn Blær, nuddprógramm, samræðuspjöld, klípusögur, sögubók, geisladiskur og tónlistarhefti og leiðbeiningar um notkun og fróðleikur fyrir starfsfólk. Jafnframt fylgir efninu litlir bangsar fyrir hvert það barn sem tekur þátt í verkefninu.
Hugrakkir krakkar segja frá
Markmið Vináttu - verkefnisins er:
Bangsinn Blær
Blær er táknmynd vináttunnar í verkefinu. Blæ fylgja litlir hjálparbangsar sem ætlaðir eru hverju barni sem tekur þátt í Vináttu. Blær og hjálparbangsarnir tákna traust og vináttu og er ætlað að minna börnin á að passa upp á aðra og að vera góður félagi allra
Markhópar
Vináttuverkefnið er ætlað þremur markhópum og í töskunni er efni fyrir þá:
Það er lykilatriði fyrir árangur að við vinnum saman og allir taki þátt til að koma í veg fyrir einelti.
Hægt að kíkja á kynningarmyndböndin hér að neðan:
og danska síðan er : http://friformobberi.dk/