Afmæli í leikskólanum
Afmælisdagur er stór dagur fyrir hvert barn. Í Grænatúni eru afmæli barnanna haldin hátíðleg inni á deildum þar sem börnin gera sér kórónu og afmælissöngurinn er sunginn.
Öll börn fá svo að velja sér fallegt afmælismatarstell til að borða af í hádeginu og dagurinn er gerður þeim minnisstæður.
Afmæli heima fyrir
Þeir foreldrar sem kjósa að bjóða börnum úr leikskólanum í afmæli barna sinna geta fengið símanúmera og netfangalista hjá deildarstjórum. Boðsbréf eiga ekki að koma í leikskólann.
Hafið í huga að enginn verði útundan þegar boðið er í afmæli, öll börn í árgangi barnsins eða allir strákar í árgangi eða allar stelpur í árgangi