Afmæli í leikskólanum
Afmælisdagurinn er einn af hápunktum ársins hjá mörgum börnum og við leggjum áherslu á að gera hann sem hátíðlegastan. Í Grænatúni eru afmæli haldin á deildunum þar sem afmælisbarnið gerir sér kórónu og afmælissöngurinn er sunginn. Í tilefni dagsins er einnig flaggað við þá deild sem afmælisbarnið er á.
Afmælisbarnið fær auk þess að velja sér fallegt afmælismatarstell fyrir hádegismatinn og leitast starfsfólkið við að gera daginn skemmtilegan, hlýlegan og eftirminnilegan.
Afmæli heima fyrir
Foreldrar sem hyggjast bjóða börnum úr leikskólanum í afmæli barns síns geta fengið netfangalista hjá deildarstjóra. Til að forðast að börn upplifi sig útundan eru afmælisboð ekki afhent í leikskólanum.
Við hvetjum foreldra til að gæta þess að engin börn verði skilin eftir þegar boðið er í afmæli. Þegar börnum úr leikskólanum er boðið skal annað hvort bjóða öllum börnum í árgangi barnsins eða öllum stelpum eða öllum strákum í árganginum.