Snemmtæk íhlutun í leikskólastarfi

Leikskólinn Grænatún var einn af tíu leikskólum í Kópavogi sem fengu tækifæri til þess að taka þátt í þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun í málörvun.  Farið var í mikla vinnu við að flokka allt málörvunarefnið og verkferla sem snúa að málþroska.  Ferlið hefur verið lærdómsríkt og skemmtilegt og er útkoman handbók um málörvun.  Nú hefur verkefnið litið dagsins ljós og erum við mjög ánægð með útkomuna.  Þær Sólveig María Kjartansdóttir sérkennslustjóri og Þórunn Jóhannsdóttir deildarstjóri stýrðu þessu verkefni. 

Hér getið þið séð verkefnið:

Snemmtæk íhlutun í leikskólastarfi.pdf